Skráning hafin í 1.umferð Íslandsmóts í Tímaati

16.6.2021

Kvartmíluklúbburinn tekur nú á móti skráningum fyrir 1. umferð Íslandsmóts í tímaati 2021 sem haldin verður á hringakstursbraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 30. júní 2021.

http://skraning.akis.is/keppni/274

Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

HOT WHEELS
HOT WHEELS JUNIOR
HOT WHEELS SPORT
HOT WHEELS TURBO
ÓBLÁSNIR RALLYBÍLAR
GÖTUBÍLAR
GÖTUBÍLAR RWD
GÖTUBÍLAR R-SPORT
BREYTTIR GÖTUBÍLAR
OPINN FLOKKUR FJÖLDAFRAMLEIDDRA BÍLA
OPINN FLOKKUR KAPPAKSTURSBÍLA
STANDARD 1000 KAPPAKSTURSBÍLA
FORMULA 1000 KAPPAKSTURSBÍLA

Ræsing ræðst af skráningu og flokkaskiptingu. Nánari högun verður birt á upplýsingatöflu fyrir keppnina.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.