
Hvað er hermikappasktur?
Hermikappastur eða Sim Racing snýst um að líkja eins nákævmlega og hægt er eftir raunverulegum akstri. Algengast kerfið sem er verið að nota er iRacing.
Hermikappakstur getur verið góð þjálfun fyrir ökumenn. Margir raunverulegir kappakstursökumenn nota hermi til æfinga og sumir sim-keppendur hafa síðar fengið tækifæri í raunverulegum keppnisbílum. Keppendur geta æft mjög mikið og þróað hæfni sína við að lesa brautir, bremsa rétt og taka ákvarðanir undir álagi. Greinin getur því verið inngangur að akstursíþróttum.
Einfaldur búnaður getur verið stýri og pedalar við skrifborð. Lengra komnir keppendur nota kappakstursgrind, sterk force-feedback stýri, load-cell pedala og jafnvel þrefalda skjái eða sýndarveruleika. Kostnaður getur því verið mjög mismunandi.