Tryggingar óskráðra tækja

Helstu tryggingarfélög landsins bjóða uppá frjálsa ábyrgðartryggingu fyrir "óskráð" keppnistæki.

1909625_278536162343859_4209956726189726207_n

AKÍS hefur fengið staðfestingu þess að TM, Vörður, Sjóvá og VÍS bjóði uppá frjálsar ábyrðartryggingar til samræmis við 18. gr. reglugerðar um akstursíþróttir.  Verðlagið er mismundi, allt frá því að vera "sanngjarnt" í "ósanngjarnt".

Fjögur stærstu tryggingarfélög landsins bjóða uppá frjálsar ábyrgðartryggingar fyrir keppnistæki sem ekki eru skráð hjá Samgöngustofu. Með því eiga keppendur og keppnishaldarar möguleika á því að brjóta ekki reglugerð um akstursíþróttir, þar sem kveðið er á um þetta.

Ef einhver vandræði eru með tryggingar óskráðra tækja vísum við keppendum á eftirfarandi tengiliði:

  • Sjóvá: Arndór Hjartarson
  • TM: Kjartan Vilhjálmsson, Einar Þorláksson og Valgeir Pálsson
  • Vörður: Bjarni Ólafsson og Sigurður Óli Kolbeinsson
  • VÍS: Hildur Jóna Þorsteinsdóttir

"Óskráð" keppnistæki fá sérstaka skráningu hjá AKÍS án greiðslu.

Sækja þarf um skráningu á vef sambandsins með því að smella HÉR.