Íþróttasjóður

10.9.2013

Umsóknarfrestur til 1. október

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði
sem starfar samkvæmt lögum nr. 64/1998 og reglugerð nr. 803/2008.

íþróttasjóður

Veita má framlög til eftirfarandi verkefna:

  •  Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana
  • Útbreiðslu- og fræðsluverkefna
  • Íþróttarannsókna
  • Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga

Rannís hefur umsjón og eftirlit með Íþróttasjóði.

Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á www.rannis.is

Umsóknum skal skila á rafrænu formi.

Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson,
andres.petursson@rannis.is, sími 515-5833.