Workshop með helsta íþróttasála heims

26.1.2018

Í tengslum við Sálfræðiþing 8. febrúar mun Dr. Robert Weinberg, sem er einn virtasti vísindamaður heims á sviði íþróttasálfræði og eftirsóttur fyrirlesari á alþjóðavettvangi, halda fyrirlestur á Hilton Reykjavík Nordica. Hér að neðan eru frekari upplýsingar um Dr. Weinberg og í viðhenginu eru nánari upplýsingar um viðfangsefnið ásamt upplýsingum um skráningu á ráðstefnuna.

Um leiðbeinandann:
Robert Weinberg er einn virtasti vísindamaður heims á sviði íþróttasálfræði og eftirsóttur fyrirlesari á alþjóðavettvangi. Hann hefur samið fjölmörg rit og er meðal annars annar höfunda söluhæstu kennslubókar um íþróttasálfræði í heiminum, „The Foundations of Sport and Exercise Psychology“. Bókin hefur verið notuð í kennslu um áraraðir við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Róbert Weinberg hefur unnið með fjölda íþróttafólks í fremstu röð, m.a. fyrir bandaríska Ólympíusambandið og fengið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín.  Hann hefur mikið fjallað um hugtakið „mental toughness“ í tengslum við íþróttir og önnur verkefni sem byggja á frammistöðu.

Weinberg - Workshop