Verðlaunaafhending meistaratitla akstursíþrótta 2018

10.11.2018

Verðlaunaafhending meistaratitla akstursíþrótta fór fram í fundarsal ÍSÍ 10. nóvember 2018.

Krýndir voru íslandsmeistarar í öllum greinum akstursíþrótta.

Eftir tilnefningar frá keppnisráðum einstakra greina og netkosningu kaus Formannafundur AKÍS eina konu og einn karl sem Akstursíþróttamenn ársins.

Akstursíþróttakona ársins 2018– Halldóra Jóhannsdóttir - KK

Akstursíþróttamaður ársins 2018 – Þór Þormar Pálsson - BA

Þessi tvö eru tilnefnd af AKÍS til kjörs íþróttamanns ársins 2018.

 

Íslandsmeistarar 2018

Grein Nafn Félag
Drift - Götubílaflokkur Jökull Atli Harðarson AÍH
Drift - Minni götubílar Árni Freyr Gunnarsson AÍH
Drift - Opinn flokkur Anton Örn Árnason AÍH
Go-Kart Gunnlaugur Jónasson
Rally – Aðstoðarökumenn AB Varahlutaflokkurinn Halldóra Jóhannsdóttir KK
Rally – Aðstoðarökumenn flokkur B Bragi Snær Ragnarsson AÍFS
Rally – Aðstoðarökumenn heildin Bragi Snær Ragnarsson AÍFS
Rally – Ökumenn AB Varahlutaflokkurinn Óskar Leifsson KK
Rally – Ökumenn flokkur B Ragnar B. Gröndal AÍFS
Rally – Ökumenn heildin Ragnar B. Gröndal AÍFS
Rallycross – Unglingaflokkur Þorvaldur Smári McKinstry AÍH
Rallycross – 1000 flokkur Árni Gunnlaugsson AÍFS
Rallycross – 2000 flokkur Vikar Sigurjónsson AÍFS
Rallycross – 4X4 Non Turbo Trausti Guðfinnsson AÍH
Kvartmíla - OF Ingólfur Arnarsson KK
Kvartmíla - TS Kristján Finnbjörnsson KK
Kvartmíla - ST Sigurður Ólafsson KK
Kvartmíla - SS Heiðar Arnberg Jónsson KK
Götuspyrna - 6 cyl Guðni Brynjar Guðnason BA
Götuspyrna - 8 cyl standard Stefán Örn Steinþórsson BA
Götuspyrna - Jeppar Hákon Heiðar Ragnarsson BA
Sandspyrna – Jeppar Eðvald Orri Guðmundsson TKS
Sandspyrna – Útbúnir jeppar Páll Skjóldal Jónsson AÍH
Sandspyrna – Opinn flokkur Valur Jóhann Vífilsson KK
Tímaat – Götubílar Viktor Böðvarsson KK
Tímaat – Götubílar RSPORT Símon H Wiium
Tímaat – Breyttir götubílar Símon H Wiium
Torfæra – Sérútbúnir Þór Þormar Pálsson BA
Torfæra – Götubílar Ívar Guðmundsson TKS

 

Halldóra Jóhannsdóttir - Rally

Halldóra keppti fyrst í ralli með Óskari bróður sínum árið 2017. Þar tóku þau þátt í þremur röllum það árið.

Árið 2018 var stefnan sett á heilt keppnistímabil.

Það var brösuleg byrjun á tímabilinu hjá þeim og enduðu þau í sjötta sæti í fyrsta rallinu. En eftir það rall var sett í 5 gírinn og skilaði það sigri í næstu tveimur röllum.

Í fjórða ralli lentu þau í öðru sæti og tryggði það Íslandsmeistaratitilinn hjá Halldóru.

Í síðasta ralli ársins þurfti Óskar bróðir hennar á sigri að halda til að ná sínum titli og var allt lagt í sölurnar til að ná fyrsta sætinu sem hafðist með góðum mun.

Halldóra hefur staðið sig vel í aðstoðarökumannsstætinu þrátt fyrir stuttan tíma þar og við megum búast við að hún haldi áfram í toppbaráttu í sínum flokki.

 

Þór Þormar Pálsson - torfæra

Þór tók þátt í öllum torfærukeppnum sumarsins og sýndi yfirburða tilþrif í öllum keppnum, virkilega flottann akstur og var alltaf í topp baráttunni og nældi sér í mörg tilþrifaverðlaun eftir sumarið og endaði tímabilið sem Íslandsmeistari og í öðru sæti á NEZ mótinu.  

Þór á einnig heiður skilið fyrir áberandi þáttöku styrktaraðila sinna á keppnum og hefur á ýmsum stöðum tekst að vekja mikla athygli á torfæru og akstursíþróttum.

Einnig keppti hann í rallýkross, drulluspyrnu, sandspyrnu og burnout á árinu með góðri frammistöðu í öllum þeim greinum.

 

Myndir frá verðlaunaafhendingu