Verðlaunaafhending meistaratitla AKÍS 2018!

6.11.2018

Verðlaunaafhending meistaratitla verður haldin í fundarsal ÍSÍ Engjavegi 6 laugardaginn 10. nóvember 2018 kl. 16:00.

Veitt verða samtals 29 verðlaun til íslandsmeistara 2018 og tilkynnt um val á akstursíþróttamanni ársins einni konu og einum karli og þeim afhentir farandbikarar.

Eins og á síðasta ári verður lokahóf AKÍS með fjölskylduvænum hætti. Boðið verður upp á gos og snakk.

Þetta er upplagt tækifæri til að gleðjast saman og hitta akstursíþróttafólk úr öllum greinum!