TOYO Torfæran núna á sunnudaginn í Jósepsdal !

22.5.2013

Nú á sunnudaginn kemur, þann 26. maí gefst landanum tækifæri að kíkja á skemmtilegustu torfærukeppni sumarsins. Keppnin verður haldin í Jósepsdal kl. 13:00 (á móti Litlu kaffistofunni). Akstursíþróttafélag Suðurnesja heldur keppnina, en þetta er jafnframt önnur umferð Íslandsmótsins í torfæru. Vert er að taka fram að helmingur ágóðans mun renna beint til Umhyggju, styrktarfélag langveikra barna. Keppendur og mótshaldarar skora á sem flesta að kíkja á keppnina og styðja verðugt málefni og fá góða skemmtun í leiðinni.

Frítt er fyrir börn 12 ára og yngri en aðgangseyrir er 1500 kr. fyrir fullorðna. Styrktaraðili keppninnar er Toyo dekk hjá Bílabúð Benna.