Torfæran á Hellu!

30.4.2019

Laugardaginn 4 maí kl 11 hefst Sindratorfæran á Hellu. Mikil spenna er í fólki þar sem þetta er fyrsta umferð Íslandsmeistaramótsins og upphaf keppnistímabilsinns.

Nítján keppendur eru skráðir til leiks og ef keppenda listinn er skoðaður má þar sjá mörg ný nöfn. Þrír nýir ökumenn í götubílaflokki og Fimm í sérútbúnum, þar af tveir breskir keppendur sem koma á vegum Topgear og ætla að sýna Íslendingunum hvernig á að gera þetta. Bílarnir eru búnir að taka breytingum í vetur búið að skipta um vélar í einhverjum og sennilega búið að skrúfa hverja skrúfu 10 sinnum og bæta nokkrum við í hverjum einasta. Einhverjir á nýsmíðuðum bílum sem aldrei hafa sést áður og aðrir búnir að breyta það mikið að þeir eru óþekkjanlegir. Þeir keppendur sem hafa verið að slást um titilinn undanfarin ár eru að sjálfsögðu á listanum. Íslandsmeistarinn Þór Þormar Pálson á Thor, Ingólfur Guðvarðarson á Guttanum, Geir Evert Grímsson og Haukur Viðar Einarsson og fleiri til í sérútbúnaflokknum. Steingrímur Bjarnason á Strumpnum situr hinsvegar einn gamalreyndur í Götubílaflokknum með þrjá nýliða með sér.

Keppnissvæðið er rétt austan Hellu, um klukustundarakstur frá Reykjavík og hefur sjaldan litið betur út. Búið er að leggja mikin metnað í svæðið og brautirnar. Áin og mýrin verða að sjálfsögðu á sínum stað, auk brauta í börðum og sandbrekkum ásamt mjög hraðri tímabraut, þar sem oft eru mikil tilþrif. 

Akstursíþróttanefnd Ungmennafélagsins Heklu heldur keppnina í samstarfi við Flugbjörgunarsveitina á Hellu.

Torfæran er áhorfendavæn, fjölskylduvæn og bráðskemmtileg. Sannkölluð veisla fyrir auga og eyra. Sjáumst á Sindratorfærunni 4. maí kl 11.