Skráning hafin í lokaumferð Íslandsmóts í Rallycross

10.8.2021

Kvartmíluklúbburinn tekur nú á móti skráningum fyrir 6. umferð Íslandsmóts í rallycross 2021 sem haldin verður á ralllycrossbraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 29. ágúst 2021.

http://skraning.akis.is/keppni/308

Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

Standard 1000 flokkur
1400 flokkur
2000 flokkur
4WD non turbo
Opinn flokkur
Unglingaflokkur

Ræst er í riðlum í þessari keppni.

Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.