Sindratorfæran Hellu

3.5.2023

Næstkomandi laugardag fer Sindratorfæran fram á Hellu.

Torfæran hefur verið einn stærsti mótorsport viðburður á landinu síðustu ár og hafa 6000 manns lagt leið sína á staðinn og 20 þúsund fylgst með í beinni útsendingu. Að venju eru það Flugbjörgunarsveitin á Hellu og Akstursíþróttanefnd umf. Heklu sem standa að þessu og hafa gert nær óslitið síðan 1975. Þetta er fyrsta umferð Íslandsmótsins 2023 og það eru 23 keppendur skráðir til leiks þar á meðal Íslandsmeistarar síðustu ára. Það eru nokkrir nýsmíðuð keppnistæki auk eldri sem hafa verið betrumbættir í allan vetur.

Aðstæður á Hellu eru með besta móti fyrir torfærukeppni og boðið uppá fljölbreytt úrval af þrautum. Byrjað er á ökuleikni sem endar í bröttum börðum þar sem útsjónarsemi og stundum klúður ökumanna skilar sér í stökkum, tilþrifum og veltum.

Seinni hluti keppninar er svo meiri hraði og meira að gerast þar sem keppendur reyna fyrir sér í tímabraut, vatnafleytingum og mýrarakstri. Keppendur þurfa að fleyta yfir tæplega 200 metra langan kafla, þar sem hraðinn og hestöflin skipta höfuð máli.

Áhorfendum gefst kostur á að skoða keppnistækin, hitta liðin og keppendur fyrir keppni í hádegishléi og eftir keppni þar sem er margt að sjá og forvitnilegt hvernig svona keppnistæki virka.

Allar upplýsingar um keppnina má finna á viðburði keppninar á facebook https://fb.me/e/2pAABVwMI
við ætlum svo að hita aðeins upp fyrir keppnina í hádeginu á fimmtudaginn við höfuðstöðvar Sindra í Kópavogi, nánar um það hér https://fb.me/e/2NaocvhJr