Sindratorfæran á Hellu fór fram 8. maí

11.5.2021

Refurinn - Hella 2021

Ólafur Bragi þeytist um í mýrinni á Hellu - Mynd Motorsportmyndir

Átján keppendur hófu keppni í tveimur flokkum. Keppnin var æsispennandi og var í beinni útsendingu á motorsport.is Hátt í 3000 manns fylgdust með streyminu.

Strax í fyrstu braut voru það þeir Ólafur Bragi Jónsson á Refnum, Snorri Þór Árnason á Kórdrengnum og Skúli Kristjánsson á Simba sem tóku forystu í sérútbúna flokknum.
Snorri leiddi framan af og sló meðal annars heimsmet í hraða á vatni þegar hann sigldi Kórdrengnum í 103 kílómetra hraða á ánni. Snorri náði ekki að klára mýrina en þá skaust Ólafur Bragi á toppinn og Skúli fylgdi fast á eftir. Ólafur Bragi var vel að sigrinum kominn eftir frábæran akstur allan daginn með 1680 stig.
Skúli, sem er ríkjandi heimsmeistari, fylgdi fast á eftir með 1599 og Snorri Þór með 1550.
Í næstu sætum á eftir voru það þeir Guðmundur Elíasson á Ótemjunni, Ásmundur Ingjaldsson á Bombunni og Sigurður ingi Sigurðsson á JIIIBBIII.
Ingvar Jóhannesson á Víkingnum hlaut tilþrifaverðlaun í þessum flokk eftir glæsileg tilþrif í þriðju braut þar sem hann snéri sér í nokkra hringi og endaði á hjólunum.
Í Götubílaflokk var það Steingrímur Bjarnason á Strumpnum, ríkjandi Íslandsmeistari, sem byrjaði titilvörnina vel en hann nældi sér í flest stig eftir daginn, hann kláraði ánna með miklum sóma og mýrina í fyrsta skipti, sem væri ekki sögulegt nema fyrir það að vera að búinn að keppa á Hellu á annan tug skipta.
Það má því segja að hann hafi komið sá og sigrað, en hann hreppti 1. sæti í sínum flokk og hlaut Helluna, farandbikar keppninar fyrir flest stig eftir daginn og tilþrifaverðlaun.
Í öðru sæti var Páll Pálsson en hann er að koma aftur eftir 11 ára hlé. Hann skellti bensín á Willys græjuna en átti aldrei möguleika á að ná Steingrími eftir að hann velti í annarri braut.
Í þriðja sæti var það Haukur Birgisson á Þeytingi hann lenti í slæmri veltu í annarri braut og datt því úr keppni en hreppti samt sem áður þriðja sætið því Óskar Jónsson lenti í slæmri bilun í fyrstu braut sem hann náði ekki að komast fyrir.
Þetta var í 45. skiptið sem Flugbjörgunarsveitin á Hellu stendur fyrir torfæru á Hellu og í fyrsta skipti sem áhorfendur geta einungis setið heima í stofu til þess að fylgjast með.