Sindra torfæran var um helgina.

9.5.2022

Sindra torfæran á Hellu var haldin um helgina um var að ræða fyrstu og aðra umferð Íslandsmótsins í torfæru.  Aðeins var ekin sérútbúni flokkurinn í þessari keppni þar sem náðist ekki skráning í götubílaflokkinn. 16 keppendur voru skráðir til leiks og mikill spenna var hjá keppendum og keppnishöldurum. Keppnin var hörð á milli manna og má segja að þeir lögðu allt í að ná að landa sigri á Hellu.

Sigurvergarar í  fyrstu umferðar voru

  1. sæti Haukur Viðar Einarsson - Hekla
  2. sæti Þórður Atli Guðnýjarson - Spaðinn
  3.  sæti Ingi Már Björnsson - Smiðju bomban

Tilþrifa verðlaunin fékk Svanur Örn Tómasson á Insane

Sigurvegarar úr annarri umferð voru

  1. sæti Haukur Viðar Einarsson - Hekla
  2. sæti Geir Evert Grímsson - Sleggjan
  3.  sæti Jón Reynir Andrésson - Thunderbolt

Tilþrifa verðlaunin fékk Þór Þormar Pálsson á Raptor

 

Hægt er að nálgast stöðuna í Íslandsmótinu hér