Kvartmíla - Önnur umferð íslandsmótsins - Úrslit

2.7.2015

Fyrsta keppni sumarsins í Kvartmílu fór fram í fínu veðri, fyrir utan smá mótvind.  Dagurinn gekk vel og voru mikil tilþrif hjá mönnum.
IMG_9692
Það var nokkuð augljóst að flestir komu spenntir undan vetrinum, enda frekar langt liðið á sumarið.  Miklar og góðar breytingar hafa orðið á keppnissvæði klúbbsins og var ekki annað að sjá að keppendur væru ánægðir með breytingarnar.
Í öllum flokkum var hart barist og það munaði oft ótrúlega litlu á milli manna þegar þeir þeystust yfir endalínuna.  Nokkur íslandsmet voru sett þrátt fyrir mótvindinn og það þýðir að við megum búast við að sjá enn fleiri met í sumar.
Íslandsmet:
G-
Agnar Fjeldsted 10,869 @ 125,55mph
G+
Guðmundur Guðlaugsson 9,635 @  148,28mph
B
Ragnar Á. Einarsson 8,788 @ 162,71mph
Úrslit dagsins:
ST
1. Sigurður Ólafsson
2. Magnús Bergsson
OF
1. Grétar Frankson
2. Harry Þór Hólmgeirsson
TS
1. Ingólfur Arnarsson
2. Garðar Ólafsson
G+
1.  Birgir Kristinsson
2. Guðmundur Guðlaugsson
B
1. Ragnar Á. Einarsson
2. Björn Sigurbjörnsson
G-
1. Agnar Fjeldsted
2. Stefán Örn Guðmundsson
LS
1. Kristján Finnbjörnsson
OS
1. Daníel Guðmundsson
Kvartmíluklúbburinn þakkar öllum fyrir góðan dag og við vonumst til að sjá sem flesta á næstu keppni sem er King of the street. Hún fer fram laugardaginnn 11 júlí.  Næsta umferð íslandsmótsins fer fram 25 júlí.
Staðan í íslandsmótinu