Keppnisráð í Torfæru heldur staðreyndardómara og brautalagningar námskeið. 

9.4.2026

Keppnisráð í Torfæru heldur staðreyndardómara og brautalagningar námskeið.

Námskeiðin eru fyrir þá sem hafa áhuga á að starfa sem staðreyndardómarar, brautastjórar ásamt þeim sem eru að fara leggja þrautirnar.

Þetta er opið öllum þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í þessum störfum í Torfærunni í sumar.

 

Námskeiðin fara fram á tveimur stöðum

Miðvikudaginn 15 apríl frá kl 19:30 á Selfossi nánar tiltekið Hrísholt 9 (félagsheimili Torfæruklúbbsins)

Fimmtudaginn 16 apríl frá kl 19:30 á Akureyri nánar tiltekið  Hlíðarfjallsvegi 13 (félagsheimili Bílaklúbbs Akureyrar)