Kassabílarallý 2016

24.5.2016

Sumarið er komið og tími komin til að draga fram kassabílana.  Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur stendur fyrir hinni árlegu keppni í kassabílaralli í Húsdýra- og fjöldkyldugarðinum sunnudaginn 29. maí 2016.  Þetta er fjórða árið sem keppnin er haldin og hafa vinsældir keppninnar alltaf farið vaxandi.  Keppnishaldarar vinna nú að því að koma keppninni í sjónvarpið og vonandi verður hægt að koma því á koppinn.

kassabilarally

Hraði og öryggi -  Öryggi er helsta viðfangsefni í öllum greinum akstursíþrótta og kassabílarallið er þar engin undantekning.  En keppnin snýst um hraða og að venju er tímataka og keppnisfyrirkomulag er með sama hætti og í rallý.

Við reiknum með spennandi keppni eins og venjulega og lofum að sjálfsögðu góðu veðri.

Sjá nánar hér.

Keppnisstjóri er Þórður Bragason S: 896-1442 thbraga@simnet.is