Íslandsmeistara mót í Rallý Crossi 17 Ágúst

15.8.2013

Laugardaginn 17 Ágúst er hið æsispennandi Íslansmeistaramót í Rallý crossi.

Keppnin verður haldin á Akstursíþróttarsvæði AÍH Krýsuvíkurveg
(rallycrossbrautinni í Kapelluhrauni)

Dagskrá keppni

. kl. 09.00 Svæði opnar (fyrir keppendur)
. kl. 09.00 Mæting keppenda
. kl. 09.30 Skoðun keppnistækja hefst
. kl. 10.00 Mætingafrestur liðinn (fyrir keppendur)
. kl. 11.00 Tímatökur hefjast
. kl. 12.00 Tímatökum lokið
. kl. 12.00 Hlé
. kl. 13.00 Ræsing keppni / fyrsti riðill (gestir mæta rétt fyrir kl:13)
. kl. 15.00 Hlé í 15-30 mín fyrir úrslitariðil
. kl. 15.30 Úrslitariðlar
. kl. 16.30 Lok keppni
. kl. 16.45 Úrslit keppni
. kl. 17.00 Kærufrestur liðinn
. kl. 21.00 verðlaunaafhending - verður á Úrilla Górillan Stórhöfða 17. 110 Reykjavík

Upp á braut er 1000 kr inn og frítt fyrir 12 ára og yngri.

Keppt er í 4 flokkum sem eru: Unglingaflokkur, 4wd króna, 2000 flokkur og opinn flokkur. Í keppni eru skráðir 8 í unglíngaflokk (krakkar ekki með bílpróf en hafa leifi frá foreldri/forráða manni og sá sem veitir það leifi er á staðnum) í 2000 flokk eru 3 skráðir, í 4wd króna eru 4 skráðir og í opna flokknum eru 2 skráðir.