ÍSAR í Horizon 2020 verkefni ESB

11.8.2017

Ísar ofurjeppahugmynd Ara Arnórssonar og félaga er komin áfram í Horizon 2020 verkefni Evrópusambandsins.

AKÍS óskar Ara til hamingju með þennan mikilvæga áfanga!

Ísar eru fyrstu farþegabílar heims gerðir frá grunni fyrir 46-54” dekk. Hönnun Ísar er niðurstaða víðtæks samráðs fjölda aðila í ofurjepparekstri og björgun með aðilum í hönnun og smíði. Ísar fást 4, 6 eða 8 dyra, fyrir allt að 18 manns, knúnir endurnýjanlegri orku eftir óskum kaupenda. Hönnun er lokið, smíði fyrsta eintaks er langt komin og raðsmíði áætluð 2018.

Helstu tölur:

Lengd 6 dyra: 5.550 mm

Breidd: 2.550 mm

Mesta innanbreidd: 2.400 mm

Hæð í vegakstursstöðu: 2.050 mm

Eiginþyngd: <3.000 kg

Heildarþyngd: 4.800 kg

Dekk: 46”-54”

Fjöðrun: Sjálfstæð á öllum hjólum, 40 cm slag

Vél: GM L86 V8 6,2l 420 hö/625 Nm, metan/bensín/metanól

eða VM 630 EcoDiesel V6 3,0l 240 hö/570 Nm, dísel/metan

Skipting: ZF 8 gíra, 4,7-0,67:1

Millikassi: BW/Atlas, 2-4 gíra, allt að 11,7:1

Drif aftan: Dana 80

Drif framan: 10” Currie

 

Sjá nánar á vef ÍSAR