HERO bílaklúbburinn mættir til leiks!

22.4.2015

Historic Endurance Rally Organisation í Bretlandi, HERO, heldur keppni fornbíla á Íslandi dagana 19. til 24. apríl 2015 undir nafninu Icelandic Saga 2015.
OLYMPUS DIGITAL CAMERAÍ keppninni taka þátt rúmlega þrjátíu erlendir keppendur, flestir frá Bretlandseyjum.

Keppnin er sambland af góðakstri (regularity rally), ökuleikni (driving test) og akstri upp brekku (hill climb) sem þó er takmarkað við hámarkshraða.  Keppnin er haldin til samræmis við reglur þeirra, breska akstursíþróttasambandins (UKMSA) og FIA um akstur fornbíla og þessar ákveðnu tegundir keppnisgreina.

Ætlunin er að aka kringum landið réttsælis og verður næturgisting í Borgarfirði, Akureyri, Egilsstöðum, Hornafirði og Hellu áður en komið er til Reykjavíkur að nýju.

Nokkrar myndir:
OLYMPUS DIGITAL CAMERAOLYMPUS DIGITAL CAMERAOLYMPUS DIGITAL CAMERAOLYMPUS DIGITAL CAMERAOLYMPUS DIGITAL CAMERA
Hér eru meiri upplýsingar:

http://www.heroevents.eu/Events/IcelandicSaga/