Fyrirlesturinn ÞÚ ERT FRÁBÆR

21.5.2025

Við hjá Akstursíþróttasambandinu erum að fá til okkar fyrirlesarann Kristján Hafþórsson hjá Peppanda .

Fyrirlestur með Kristjáni Hafþórssyni – “Þú ert frábær” 🏸📚

Peppandi er fyrirlestraröð um jákvæðni, hugrekki og valdeflingu. Peppandi samanstendur af fyrirlestrum sem heita ,,Þú ert frábær!“ og eru fyrirlestrarnir ætlaðir öllum. Jákvæðni, hugrekki og valdefling eru lykilorðin þrjú en á sama tíma er fyrirlesturinn strangheiðarlegur því jákvæðni  er heiðarleiki með vonina að vopni og það að sjá aðstæðurnar sem hálffullt glas en ekki hálftómt. Fyrirlesturinn hentar öllum því hann fjallar í grunninn um það sem við erum öll að kljást við frá degi til dags.

📍 Staðsetning: Fundarsalur C - ÍSÍ
Tími: 20:00-21:00

Fyrirlesturinn er opin öllum

Ekki láta þetta tækifæri fram hjá þér fara þann 05. júní n.k. í fundarsal ÍSÍ – hlökkum til að sjá þig!