Drift: Fyrsta umferð íslandsmeistaramóts - 21. maí 2016

19.5.2016

received_10154824900268332

Mynd : Sæmundur Eric Erlendsson.

Keppnin er haldin á vegum Driftdeildar Akstursíþróttafélags Hafnafjarðar og liður í Íslandsmeistaramótsröð sem haldin er á vegum AKÍS.

Forkeppni hefst klukkan 11:00 og stendur til 12:30, þá er áætlaður hálftími í mat og hefst svo útsláttarkeppnin sjálf klukkan 13:00.

23 keppendur eru skráðir í keppnina og verður það að teljast met í fyrstu keppni sumarsins, eins og þeir vita sem fylgst hafa með er drift sú akstursíþróttagrein sem mest er að sækja í sig veðrið um þessar mundir.

Lofum við í DDA því æsispennandi keppni og hverjum alla til að koma og sjá. Aðgangseyrir eru litlar 1000 kr og er frítt fyrir börn yngri en 12 ára í fylgd með fullorðnum. Einnig verður sjoppa á staðnum og verða þar til sölu gos, sælgæti og pylsur á hóflegu verði.

Allar frekari upplýsingar má finna á Facebook síðu Drifdeildar AÍH.