Dagur sjálfboðaliðans 5. desember

29.11.2023

Í tilefni af degi sjálfboðaliðans þann 5. desember n.k. munu ÍSÍ og UMFÍ bjóða sjálfboðaliðum íþróttahreyfingarinnar að koma í Íþróttamiðstöðina í Laugardal og halda upp á daginn með okkur.

Klukkan 15:00 verður stutt málþing þar sem þau þrjú sem tilnefnd voru til Íþróttaeldhuga ársins 2022, Haraldur Ingólfsson (KA/Þór), Þóra Guðrún Gunnarsdóttir (ÍSS, Björninn, SR) og Friðrik Þór Óskarsson (FRÍ, ÍR) munu segja sína sögu úr sjálfboðastarfi fyrir íþróttahreyfinguna. Að dagskrá lokinni eða um kl.16 er öllum viðstöddum boðið í vöfflukaffi í boði Vilko og Mjólkursamsölunnar.

Með þessu vilja ÍSÍ og UMFÍ vekja athygli á ómetanlegu framlagi sjálfboðaliða til íþróttastarfsins, en án þeirra gengi starfið einfaldlega ekki upp. Takk sjálfboðaliðar!