Ársþing Akstursíþróttasambands Íslands 2013

6.3.2013

Akstursíþróttasamband Íslands boðar til ársþings sambandsins 16. mars n.k. kl.13:00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, C-sal.

Rétt til setu á þinginu eiga þeir fulltrúar frá þeim íþróttabandalögum, héraðssamböndum og félögum sem mynda sambandið.

Fulltrúafjöldi hvers félags fer eftir tölu útgefinna keppnisskírteina sem hér segir:

  • 0 til og með 25: Einn fulltrúi
  • 26 til og með 50: Tveir fulltrúar
  • 51 til og með 100: Þrír fulltrúar
  • 101 og fleiri: Fjórir fulltrúar

Hvert héraðssamband og íþróttabandalag þar sem akstusíþróttir eru stundaðar hafa rétt til að senda einn fulltrúa til að sitja þingið.

Á ársþingi hafa fulltrúar þeirra aðildarfélaga sem eru skuldlaus við AKÍS einir atkvæðisrétt
Allir fulltrúar skulu tilgreindir á kjörbréfi frá viðkomandi sambandsaðila og skal skila kjörbréfum við upphaf þinghalds. Hver fulltrúi fer með eitt atkvæði en getur auk þess farið með annað atkvæði, samkvæmt skriflegu umboði þess sambandsaðila sem hann er fulltrúi fyrir.

Málefni sem sambandsaðilar óska að tekin verði fyrir á þinginu skulu berast stjórn AKÍS minnst 3 vikum fyrir þing.