Ársþing AKÍS 2026

13.2.2026

Ársþing Akstursíþróttasambands Íslands verður haldið laugardaginn 14. mars 2026.

Tilkynningar um framboð til formanns - og stjórnarkjörs skulu berast stjórn AKÍS eigi síðar en þremur vikum fyrir ársþing, það er fyrir miðnætti laugardaginn 21. febrúar 2026.

Tillögur sem óskast teknar fyrir á ársþingi, skulu hafa borist stjórn AKÍS þremur vikum fyrir þing, það er fyrir miðnætti laugardaginn 21. febrúar 2026

Framboð og tillögur skulu vera send á akis@akis.is