AKÍS - Tilnefningar til íþróttamanns ársins

18.12.2013

Konur

Elsa Kristín Sigurðardóttir - Aðstoðarökumaður í Rally

elsa-kristin

Elsa Kristín er einn besti kódriver landsins og mikil fagmanneskja. Hún getur sest í bíl með hvaða ökumanni sem er. Til að vera góður aðstoðarökumaður í rally þarf mikinn undirbúning og andlegan styrk. Elsa hefur sérlega gott lag á að finna réttan takt með ökumanni.

Elsa Kristín var fyrsta íslenska konan sem keppti erlendis. Þetta var árið 2002 í rally í Belgíu.

Elsa fær tilnefningu fyrir árangur til margra ára. Alltaf brosandi og til í að hjálpa og taka þátt í öllu. Elsa byrjaði 15 ára gömul sem aðstoðarökumaður hjá föður sínum. Hún hefur verið síðar verið aðstoðarökumaður hjá mörgum öðrum ökumönnum og skilar sér nánast alltaf í mark.

Í sumar náði Elsa 4ða sæti í Suðurnesjarallinu og tók þátt í Rally Reykjavík.

Karlar

Ólafur Bragi Jónsson - Torfæra

olafur-bragi-dv

Ólafur keppir í Torfærunni í flokki sérútbúinna bíla (Unlimited Class). Hann hóf keppni fyrst árið 2006 á bíl sínum “Refnum” og lauk þá keppnistímabilinu í 6. sæti. Ári síðar mætti hann og endaði í 2. sæti og hampaði svo sínum fyrsta Íslandsmeistaratitili árið 2008. Ólafur varð Íslandsmeistari í flokki útbúinna jeppa í sandspyrnu árið 2010 og 2011. Ólafur Bragi var Íslandsmeistari í torfæru 2011.

olafur-bragi-nez

Ólafur Bragi mætti í síðustu tvær keppnir 2012 og vann þær báðar og tryggði sér þannig sinn þriðja Íslandsmeistaratitil í torfæru í röð.

Ólafur Bragi varð annar í íslandsmótinu í ár og náði þeim frábæra árangri að verða Norður-Evrópumeistari í torfæru. Titlinum landaði Ólafur í Skien í Noregi síðasta sumar.