Verðlaunaafhending meistaratitla akstursíþrótta 2019!

9.11.2019

Verðlaunaafhending meistaratitla akstursíþrótta fór fram í fundarsal ÍSÍ 9. nóvember 2019.

Krýndir voru íslandsmeistarar í öllum greinum akstursíþrótta.

Eftir tilnefningar frá keppnisráðum einstakra greina og netkosningu kaus Formannafundur AKÍS eina konu og einn karl sem Akstursíþróttamenn ársins.

 

Akstursíþróttakona ársins 2019– Guðríður Steinarsdóttir - BA

Akstursíþróttamaður ársins 2019 – Steingrímur Bjarnason - TKS

Þessi tvö eru tilnefnd af AKÍS til kjörs íþróttamanns ársins 2019.

 

Íslandsmeistarar 2019

Grein Nafn Félag
Drift - Götubílaflokkur Ragnar Már Björnsson KK
Drift - Minni götubílar Krzysztof Kaczynski KK
Drift - Opinn flokkur Birgir Sigurðsson KK
GoKart Gunnlaugur Jónasson KK
Rally – Aðstoðarökumenn AB Varahlutaflokkurinn Guðni Freyr Ómarsson BÍKR
Rally – Aðstoðarökumenn flokkur B Heimir Snær Jónsson BÍKR
Rally – Aðstoðarökumenn heildin Heimir Snær Jónsson BÍKR
Rally – Ökumenn AB Varahlutaflokkurinn Jósef Heimir Guðbjörnsson BÍKR
Rally – Ökumenn flokkur B Baldur Arnar Hlöðversson BÍKR
Rally – Ökumenn heildin Baldur Arnar Hlöðversson BÍKR
Rallycross – Unglingaflokkur Arnar Már Árnason AÍH
Rallycross – 1000 flokkur Kristófer Daníelsson BA
Rallycross – 2000 flokkur Ragnar Magnússon AÍFS
Rallycross – 4X4 Non Turbo Trausti Guðfinnsson AÍH
Rallycross – Opinn flokkur Vikar Karl Sigurjónsson AÍFS
Kvartmíla - OF Stefán Hjalti Helgason KK
Kvartmíla - TS Svanur Vilhjálmsson KK
Kvartmíla - ST Ingimar Baldvinsson KK
Kvartmíla - SS Bjarki Hlynsson KK
Götuspyrna - 6 cyl Tómas Karl Benediktsson BA
Götuspyrna - 8 cyl standard Stefán Örn Steinþórsson BA
Götuspyrna - 8 cyl + Kristján Skjóldal BA
Götuspyrna - Jeppar Jóhann Björgvinsson BA
Sandspyrna – Jeppar Steingrímur Bjarnasson TKS
Sandspyrna – Útbúnir jeppar Kristján Stefánsson KK
Sandspyrna – Opinn flokkur Valur Jóhann Vífilsson KK
Tímaat – Götubílar Pétur Wilhelm Jóhannsson KK
Tímaat – Breyttir götubílar Hilmar Gunnarsson KK
Hermikappakstur Jónas Jónasson KK
Torfæra – Sérútbúnir Þór Þormar Pálsson BA
Torfæra – Götubílar Steingrímur Bjarnason TKS

 

Guðríður Ósk Steinarsdóttir

Guðríður Ósk Steinarsdóttir er 25 ára Reykjavíkurmær. Hún starfar hjá BL og er nemi í bílamálun. Hún hóf að keppa í 1000 flokki í rallycrossi haustið 2018.

Hún er því á fyrsta ári og það í fjölmennasta flokknum, og klárar þar í öðru sæti til Íslandsmeistara.

Guðríður Ósk er systir Alexanders Más sem hefur um langt skeið keppt í torfæru og rallycrossi, og er hann hennar hornsteinn í þessum keppnum.

Hún hefur sýnt hörkuakstur og kemur vel fyrir og er sporti sínu til sóma, og á klárlega heima á þessum lista yfir tilnefningu á akstursíþróttakonu ársins.

 

Steingrímur Bjarnason

Steingrímur Bjarnason náði þeim frábæra árangri í sumar að verða íslandsmeistari í tveimur greinum, götubíla flokk í torfæru ásamt því að vinna jeppaflokk í sandspyrnu á fullu húsi stiga. 

Steingrímur á gríðarlega margar keppnir að baki ásamt mörgum sigrum og tilþrifaverðlaunum.

Steingrímur endurtók leikinn frá því fyrir 10 árum síðan þar sem hann varð einnig Íslandsmeistari í sömu greinum.

 

Myndir frá verðlaunaafhendingu