Verðlaunaafhending meistaratitla AKÍS 2019!

2.11.2019

Verðlaunaafhending meistaratitla verður haldin í fundarsal ÍSÍ Engjavegi 6 laugardaginn 9. nóvember 2019 kl. 16:00.

Veitt verða samtals 31 verðlaun til íslandsmeistara 2019 og tilkynnt um val á akstursíþróttamanni ársins einni konu og einum karli og þeim afhentir farandbikarar.

Eins og á síðasta ári verður lokahóf AKÍS með fjölskylduvænum hætti. Boðið verður upp á gos og snakk.

Þetta er upplagt tækifæri til að gleðjast saman og hitta akstursíþróttafólk úr öllum greinum...

...og endilega skráðu þig á viðburðinn!