Verðlaunaafhending meistaratitla 2017!

3.11.2017

Verðlaunaafhending meistaratitla verður haldin í fundarsal ÍSÍ Engjavegi 6 laugardaginn 11. nóvember 2017 kl. 16:00.

Veitt verða rúmlega 20 verðlaun til íslandsmeistara 2017 og tilkynnt um val á akstursíþróttamanni ársins einni konu og einum karli og þeim afhentir farandbikarar.

Eins og á síðasta ári verður lokahóf AKÍS með fjölskylduvænum hætti. Boðið verður upp á gos og snakk.

Þetta er upplagt tækifæri til að gleðjast saman og hitta akstursíþróttafólk úr öllum greinum!