Úttektir öryggisbúra

11.2.2020

Eins og flestir vita er hafin vinna við úttekt öryggisbúra í keppnistækjum. Sett hefur verið upp tímaáætlun og vonast er til að flest keppnistæki verði komin með fulla skráningu fyrir fyrstu keppnir í sumar.

Þann 31. janúar 2020 fóru tilvonandi úttektarmenn AKÍS yfir verkferil við skráningu og voru tekin keppnistæki úr mismunandi greinum.

Enn eru lausir tímar í fasta daga sem ákveðnir hafa verið:

  • 22. febrúar 2020 í Reykjavík
  • 28. mars 2020 á Akureyri
  • 18. apríl 2020 í Reykjavík
  • 9. maí 2020 í Reykjavík

Hér er hægt að skrá keppnistækið í skoðun öryggisbúra.

Rétt er að minna á að FIA hefur nýlega gefið akstursíþróttasamböndum heimild til að gefa út svokallaðar lands gerðarvottanir.  Þannig að þessi úttekt öryggisbúranna er liður í því að slíkt komist á hérlendis.

Meginniðurstöður

  • Öll öryggisbúr sem smíðuð verða hér eftir verða gerð í samræmi við Viðauka J kafla 253.8 í Reglubókinni.
  • Þau keppnistæki sem hafa FIA gerðarvottuð öryggisbúr þurfa ekki að breyta neinu, enda séu festingar og uppsetning í keppnistækinu í samræmi við gerðarvottunina.
  • Öryggisbúr þurfa að hafa gluggastífur samanber grein 8.3.2.1.4 fyrir keppnistímabilið 2020
  • Öryggisbúr smíðuð hér á landi sem uppfylla ekki kröfur um
    • kross í aðalboga
    • kross/stífur í þak
    • Áfellur

fá frest til að laga það til 1. maí 2021. Tíma þennan mun AKÍS nota til þess að skoða hvað hefur verið gert í öðrum löndum í kringum okkur í þessum efnum og áskilur AKÍS sér rétt til að breyta undanþágum til samræmis við útkomu þeirrar skoðunar og framlengja frest ef ástæða þykir.

  • Stjórn AKÍS mun skoða kröfur um styrk og búnað öryggisbúra í samvinnu við fagaðila fyrir hverja keppnisgrein og út frá því hvort breyta megi kröfum í einstökum keppnisflokkum.

Þannig er ljóst að á þessu ári geta öll keppnistæki sem kepptu á síðasta ári áfram verið með í ár með lágmarks tilkostnaði.