Úrslit: Fyrsta umferð Íslandsmeistarmóts í Drift

1.6.2017

Sunnudaginn 28. maí 2017 fór fram fyrsta umferð Íslands- og bikarmeistaramótsins í Drift í boði Pústþónustunnar BJB á akstursvæði Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar.
Þrátt fyrir rigningaskúri um morguninn sem háði þeim 20 keppendum sem mættir voru í undankeppni, stytti upp um leið og útsláttarkeppni í minni götubílaflokk hófst. Þar er á ferðinni nýr flokkur sem höfðar til byrjenda í íþróttinni og gilda stig í honum aðeins til bikarmeistara, það var hinsvegar ljóst að keppendur ætluðu ekkert að gefa eftir þrátt fyrir að teljast nýliðar og var baráttan hörð og spennandi.
Alls mættu 10 ökumenn í þennan nýja flokk en féll einn þeirra út í undankeppninni og börðust því 9 ökumenn um verðlauna sætin þrjú. Eftir mikla baráttu stóð Jökull Atli Harðarson uppi sem sigurvegari, í öðru sæti lenti Sindri Freyr Ísaksson og í því þriðja Guðlaugur Birkir Jóhannsson.
Eftir að úrslit í minni götubílaflokki voru komin á hreint var komið að götubílaflokkum sjálfum en með tilkomu nýja flokksins hefur nýr eldmóður færst í keppendur og smíði keppnistækja í götubílaflokknum. 10 keppendur öttu kappi um verðlaunasætin þrjú þar, það var ljóst strax frá fyrsta keppnispari að ekkert yrði gefið eftir og fengu áhorfendur alveg hreint magnaða sýningu frá keppendunum.
Þegar leið á keppnina fór að bera á svokölluðum aukaferðum þar sem dómarar óska eftir auka ferðum keppenda vegna þess að ekki er unnt að gera upp á milli þeirra og er það besta lýsingin á því hversu jöfn og spennandi keppnin var. Það er því augljóst að þetta sumar verður það allra stærsta í drift íþróttinni hingað til. Að lokinni keppni stóð Alexander Sigurðsson uppi sem sigurvegari, hreppti Sigurjón Elí Eiríksson annað sætið og Ívar Már Sigurpálsson það þriðja.
Efstu þrír keppendur í hvorum flokki voru leystir út með bikurum og vinningum frá BJB, Freyju, Málningarvörum og Autoparts.
Keppnin gekk mjög vel fyrir sig og voru keppendur og starfsmenn mjög ánægðir eftir daginn og vilja starfsmenn AÍH koma sérstökum þökkum til snappkóngsins Gæa Icerednek sem kynnti keppnina með sinni alkunnu kímni.
Næsta umferð í Íslands- og bikarmeistaramótinu á vegum AKÍS fer fram á bíladögum á Akureyri 15. júní 2017.
Sjá stöðuna í íslandsmeistaramótinu.