Gullverðlaunahafi og heimsmethafi - afreksþjálfun og markmiðssetning!

16.8.2017

Mánudaginn 21. ágúst verður haldinn hádegisfyrirlestur í Háskólanum í Reykjavík í tilefni af 150 ára afmæli Skotfélags Reykjavíkur. Þar munu margfaldir ólympíu- og heimsmeistarar í skotíþróttum þau Niccolo Campriani og Petra Zublasing halda erindi um ýmsar hliðar skotíþrótta með áherslu á afreksþjálfun og markmiðasetningu.

Þrátt fyrir að fyrirlesararnir komi úr röðum skotíþrótta þá eiga fyrirlestrarnir erindi við alla áhugasama um íþróttir óháð íþróttagrein.

Fyrirlestrarnir fara fram í stofu M209, hefjast kl. 12 og verður lokið í síðasta lagi kl.13:30.

Aðgangur er ókeypis.

Nánari upplýsingar er að finna í viðhengi.