Fyrsta umferð Íslandsmeistaramóts í drift

26.5.2015

Fyrsta umferð Íslandsmeistaramóts í drift fór fram Laugardaginn 23. maí.

Keppnin tókst vel til og voru í heildina 15 keppendur skráðir til leiks sem er margföldun í keppendum sé miðað við síðastliðin ár, þurfti einn keppandi að draga sig úr keppni og voru því 14 keppendur mættir á laugardagsmorgun.
Keppnin gekk frábærlega fyrir sig þrátt fyrir að veðrið hafi örlítið verið að stríða okkur þar sem gekk á með skúrum fyrri part dags. Reyndist þetta vera æsispennandi keppni og börðust menn til síðasta dekks.
Úrslitin úr keppninni urðu eftirfarandi:
1.) 10 Fannar Þór Þórhallsson á Porsche 944 - 110 stig
2.) 7 Patrik Snær Bjarnason á BMW 325 - 86 stig
3.) 1 Þórir Örn Eyjólfsson á BMW 518 - 82 stig
4.) 16 Ríkarður Jón Ragnarsson á Pontiac Firebird - 58 stig
5-6.) 28 Sævar Sigtryggsson á BMW M5 - 34 stig
5-6.) 58 Konráð Karl Antonsson á BMW 325 - 34 stig
7.) 86 Þórir Már Ingvason á BMW 540 - 33 stig
8.) 8 Sigurjón Elí Eiríksson á BMW 325 - 32 stig
9.) 69 Andri Már Guðmundsson á BMW 325 - 13 stig
10-12.) 3 Hjalti Snær Kristjánsson á BMW 328 - 12 stig
10-12.) 11 Símon Haukur Guðmundsson á BMW 325 - 12 stig
10-12.) 9 Aron Steinn Guðmundsson á BMW M5 - 12 stig
13-14.) 619 Jökull Þór Kristjánsson á BMW 328 - 11 stig
13-14.) 2 Ármann Ingi Ingvason á BMW 323 - 11 stig
Myndir frá keppninni: Þröstur Njálsson
 
Ármann Ingi Fannar Þór Patrik Snær Ríkaður Jón (1) Þórir Örn
 
Drift er akstursíþrótt sem snýst um að aka fyrirfram ákveðna braut sem saman stendur af minnst 5 beygjum og reyna keppendur að aka þá braut sem mest á "hlið" eða með afturenda bílsins til hliðar og dæma dómarar eftir því hve hratt brautin er ekin, því hversu mikil gráðan er þ.e.a.s. hversu mikið afturendinn vísar til hliðar, því hversu mikinn reyk leggur frá afturdekkjum bílsins, tekið er tillit til gæða stílsins, þ.e.a.s. hversu gott flæði er í akstrinum og af hversu miklu öryggi er ekið. síðast en ekki síst er skoðað hversu vel ökumenn fylgja bestu línunni í gegnum brautina.
Hægt er að sjá stöðuna í Íslandsmótinu hér:
http://www.ais.is/stadan/drift/drift-2015/